Vika 2 - Æfing 1
Byrjaðu á að taka upphitunaræfingu. Síðan ætlar þú að fara 3-4 mín á þrektæki, byrja rólega og gefa í með hverri mínútu. T.d. á assault bike byrja í 150 watts og auka um 50-100 á hverri mínútu, á Bike erg hjólinu að byrja í 60rmp og auka um 5 rpm á hverri mínútu. Næsti hluti er æfing á tíma þannig að þú ætlar að taka æfingu á 40 sek og hvíla í 20 sek á milli, fara síðan 4 hringir þannig þetta eru 20 mínútur í heildina. Ef þú ætlar að nota Interval Timer app að þá myndir þú stilla klukkuna þannig að það er high 40 sek, low 20 sek og set: 20. Síðasti hlutinn er AMRAP æfing þar sem þú ferð eins oft í gegnum æfinguna á 3-6 mín. Gætir bætt við þig finisher vikunnar og endaðu æfinguna á teygjum.
Tæki og tól: Þrektæki, handlóð/stöng, minibandsteygja, ketilbjalla ef þú vilt taka snatch með bjöllu
Byrja á 3-4 mín á þrektæki
40/20 - 20 mín (4 hringir)
1. Hliðarhnébeygja
2. Kneeling good morning
3. Thrusters
4. Russian twist
5. Snatch
AMRAP 3-6 mín
1. 10x Clean squat
2. 40x Hliðarskref
Hér fyrir neðan er útskýring af æfingu dagsins