Happy Hips
Hvatning dagsins
Haltu áfram, þú verður betri þegar þú heldur áfram - sérstaklega í aðstæðum þar sem hugurinn er að kalla fram allar ástæður/afsakanir til þess að gera eitthvað annað. Þannig aðstæður kalla ég "Tækifæri to break the habit". Þegar þú nennir ekki einhverju er kjörið tækifæri að breyta vananum. Ef þú ert að upplifa þannig dag í dag að nenna ekki einhverju hugsaði "YESS! tækifæri til þess að breyta vananum".
Upplýsingar um æfingu dagins
Æfing dagsins er grindarbotns/kviðæfing og bandvefslosun. Misjafnt hvað þessi æfing tekur langan tíma en ætti ekki að taka lengri tíma en 20-30 mín. Ef þú hefur minni tíma, veldu úr æfingunum þau svæði sem þér finnst þú mest þurfa að losa um.
Tæki/tól: Tveir nuddboltar (ef þú átt ekki nuddbolta gætir þú notað tennisbolta) og blöðrubolti (ef þú átt ekki blöðrubolta gæti þú notað kodda en hann mun ekki hafa sömu áhrif).
ATH: Ef þú finnur til í einhverri æfingu skaltu sleppa henni.
Æfing 1: Sérstök grindarbotns/kviðæfing
Tæki/tól: Koddi eða blöðrubolti
3x í gegn:
- 10x liggjandi grindarbotns/kviðæfing með bolta milli fóta
- 60 sek hvíld
Æfing 2: Mjóbak
Tæki/tól: Tveir litlir nuddboltar (ef þú átt ekki nuddbolta gætir þú notað tennisbolta) og blöðrubolti (getur sleppt æfingunni með blöðrubolta ef þú átt ekki blöðrubolta eða prófað með kodda - ath hann hefur ekki sömu áhrif).
Veldu eina útgáfu eða framkvæmdu þær allar:
Nudda mjóbak í gólfi með blöðrubolta (mýkri útgáfa)
- Komdu þér fyrir í liggjandi stöðu. Farðu með mjaðmir rólega upp frá gólfi og staðsettu blöðruboltann á mjóbak/mjaðmir. Settu hendur beint út til hliðar. Hafðu eins mikið loft í boltanum og er þægilegt fyrir þig.
- Nuddaðu til hægri og vinstri 5-10x (eða eins oft þú þarft á að halda)
- Stoppaðu og slakaðu alveg á grindarbotns- og kviðvöðvum í 4-6 andadrætti eins lengi og þú þarft í dag.
- Komdu þér fyrir í liggjandi stöðu.
- Farðu með mjaðmir rólega upp frá gólfi og staðsettu báða boltana þannig að þeir verða eins ofarlega og þeir komast án þess að rassinn fari í gólfið (ss fyrir ofan mjaðmakambinn). Settu hendur beint út til hliðar.
- Nuddaðu til hægri og vinstri 5-10x (eða eins oft þú þarft á að halda) og mundu að slaka á vöðvunum á meðan að þú ert að nudda.
- Stoppaðu og slakaðu alveg á grindarbotns- og kviðvöðvum í 4-6 andadrætti eins lengi og þú þarft í dag.
Nudda mjóbak við vegg með einn bolta
- Komdu þér upp við vegg með einn bolta og staðsettu boltann fyrir ofan mjaðmakambinn og öðru megin við hryggjarsúluna.
- Rúllaðu til hægri og vinstri 3-5x eða eins lengi og þú þarft í dag.
- Ef þú finnur spennublett og reyndu að slaka á í þessum punkti í ca 3 andardrætti með því að anda að þér og spenna vöðvann, andað frá þér og slaka enn betur á.
- Rúllaðu síðan upp og niður 3-5x eða eins lengi og þú þarft í dag.
-
Ef þú finnur spennublett og reyndu að losa um hann með ca 3 andardrætti. Þú getur andað að þér og spennt vöðvann, andað frá þér og slakað á í boltann.
- Skiptu um hlið og gerðu nákvæmlega sama hinu megin.
Æfing 3: Brjóstvöðvar
Tæki/tól: Einn lítill nuddbolti (ef þú átt ekki nuddbolta gætir þú notað tennisbolta).
Annaðhvort nudda upp við vegg eða upp við vegg hjá horni.
Nudda brjóstvöðva upp við vegg með einum bolta (passa að gera þessa varlega, sérstaklega ef þú ert að gefa brjóst)
- Byrjaðu á annarri hliðinni með því að "finna brjóstvöðvann" með boltanum (ekki rúlla brjóstið sjálf). Notaðu hönd á móti brjóstvöðva og rúllaðu upp og niður með boltanum. Fá tilfinningur fyrir vöðvanum.
- Útgáfa upp við vegg: Komdu þér næst fyrir í standandi stöðu upp við vegg, staðsettu boltann neðarlega á brjóstvöðvann og byrjaðu að rúlla upp að viðbeini og niður að brjósti 3-5x eða eins oft og þú þarft í dag. Stoppaðu og rúllaðu síðan að bringubeini og handakrika 3-5x eða eins oft og þú þarft í dag. Skiptu um hlið ef þú ert ekki við horn.
- Útgáfa upp við vegg hjá horni: Komdu þér næst fyrir í standandi stöðu upp við vegg, staðsettu boltann neðarlega á brjóstvöðvann og byrjaðu að rúlla upp að viðbeini og niður að brjósti 3-5x eða eins oft og þú þarft í dag. Stoppaðu og rúllaðu síðan að bringubeini og handakrika 3-5x eða eins oft og þú þarft í dag. Skiptu um hlið ef þú ert ekki við horn. Hreyfðu hendina næst upp og niður 3-5x (rólega og passaðu að axlir haldast niður frá öxlum). Stoppaðu og hreyfðu hendina síðan 3-5x út (opnaðu faðminn) og aftur að veggnum. Næst getur þú farið dýpra í þessa æfin gu með því að krækja hendina fyrir aftan mjóbak, rúlla upp og niður og til hliðar nokkrum sninnum. Skiptu um hlið og gerðu nákvæmlega sama hinu megin.
Æfing 4: Trapezius (efra bak og vöðvabólgusvæðið)
Tæki/tól: Einn lítill nuddbolti (ef þú átt ekki nuddbolta gætir þú notað tennisbolta).
- Komdu þér fyrir upp við vegg með einn bolta og staðsettu boltann öðru megin við hryggjarsúluna, neðarlega hjá herðablaðinu.
- Rúllaðu beint upp og niður, ert að reyna að finna spennupunkt. Þegar þú finnur spennupunkt stoppaðu þar. Lagaðu boltann ef þess þarf til að gera líkamsstöðuna betri.
- Haltu í punktinum og hreyfði hendina 3-5x (eða eins oft og þú þarft) upp og niður eins hátt og hún kemst án þess að axlir fara upp að eyrum. Stoppaðu. Farðu næst með hendina 3-5x (eða eins oft og þú þarft) út til hliðar (opna faðminn) og alveg yfir og snerta hina öxlina. Endaðu með hendina á hinni öxlinni og rúllaðu 3-5x (eða eins oft og þú þarft) til hægri og vinstri (frá hryggjarsúlu og að herðablaði). Stoppaðu og farðu 3-5x (eða eins oft og þú þarft) upp og niður.
- Ef þú finnur aðra spennupunkta meðfram herðablaðinu nuddaðu eins og í skrefi 3.
- Skiptu um hlið og gerðu nákvæmlega sama hinu megin.
Nudda vöðvabólgusvæðið við vegg með einum bolta
- Komdu þér fyrir upp við vegg aðeins á hlið með einn bolta og staðsettu boltann fyrir neðan háls, þar sem þú finnur fyrir vöðvabólgu.
- Rúllaðu upp og niður, út til hliðana, ert að þreifa á vöðvanum. Settu höfuð við vegg ef þú ert að spenna hálsvöðva í þessu.
- Finndu spennupunkt. Farðu með höfuð frá vegg, reyndu að finna fyrir togi upp háls. Rúllaðu 3-5x upp og niður. Rúllaðu 3-5x til hliðana.
- Ef þú ert með fleiri punkta nuddaði eins og í skrefi 2 og 3.
- Skiptu um hlið og gerðu nákvæmlega sama hinu megin.
Æfing 5: Axlir
Tæki/tól: Einn lítill nuddbolti (ef þú átt ekki nuddbolta gætir þú notað tennisbolta).
- Komdu þér upp við vegg á hlið með einn bolta og staðsettu boltann á miðjan axlar vöðvann.
- Notaðu neðri líkamann til þess að rúllaða 3-5x beint upp að öxl og niður. Slakaðu alveg á hendinni sem þú ert að rúlla og því lengra sem þú stígur frá því dýpra nærðu að rúlla í vöðvann.
- Rúllaðu 3-5x upp og niður og á sama tíma fram og aftur, ert að þreifa fyrir spennupunkt. Stoppaðu þar sem þú finnur spennupunkt og lagaðu boltann ef þess þarf til að gera líkamsstöðuna betri. Reyndu að slaka á í þessum punkti ca 3 andardrætti með því að anda að þér, spenna vöðvann og þrýsta handarbakið upp við vegg. Anda síðan frá þér og slaka alveg á hendinni og vöðvanum. Endaðu á því að rúlla 3-5x til hægri og vinstri.
- Ef þú finnur aðra spennupunkta í öxlinni nuddaðu eins og í skrefi 3.
- Skiptu um hlið og gerðu nákvæmlega sama hinu megin.
Myndbönd
Æfing 1: Sérstök grindarbotns/kviðæfing
Liggjandi grindarbotns/kviðæfing með bolta/kodda milli fóta
Æfing 2: Mjóbak
Nudda mjóbak í gólfi með blöðrubolta (mýkri útgáfa)
Nudda mjóbak í gólfi með tvo bolta
Nudda mjóbak við vegg með einn bolta
"Vöðvabólgu svæðið"