Upplýsingar um æfinguna
Líkamsstaðan getur breyst eftir fæðingu, eftir að framþunginn á meðgöngunni er farinn en líka við það hvernig við beitum okkur við að hugsa um barnið/börnin. Það er gott að vera meðvituð um líkamsstöðuna allan daginn ásamt því að gera sérstakar æfingar sem stuðla að góðri líkamsstöðu. Þú getur gripið í þessa æfingu sem tekur um 10 mín ef þú vilt vinna enn meira með líkamsstöðuna. Þú nálgast hverja æfingu með því að smella á hana.
Tæki/tól fyrir æfingu dagsins: Nuddrúlla, dýna.
ATH: Ef þú finnur til í einhverri æfingu skaltu sleppa henni.
Æfing
Tæki/tól: Nuddrúlla, dýna
1x í gegn:
- 1. 30 sek rúlla rassvöðva, hægri
- 2. 30 sek rúlla rassvöðva, vinstri
- 3. 30 sek rúlla spjalhrygg
- 4. 30 sek rúlla efra bak
- 5. Halda í líkamsstöðupunkt (eins lengi og þú þarft á hverjum punkti fyrir sig)
- 6. 30 sek rúlla efra bak
- 7. 30 sek köttur kú
- 8. 30 sek barnið
- 9. 60 sek teygja á aftanverðan lærisvöðva + mjaðmaopnun og upp í hnébeygju
- 10. 30 sek köttur kú
- 11. 30 sek barnið
- 12. 15-30 sek teygja á milli herðablaða
- 13. 30 sek teygja á brjóstvöðva, hægri
- 14. 30 sek teygja á brjóstvöðva, vinstri
Rúlla spjaldhrygg
Rúlla efra bak
Halda í líkamsstöðupunkt
Köttur kú
Barnið
Teygja á aftanverðan lærisvöðva + mjaðmaopna og upp í hnébeygju
Teygja á milli herðablaða
Teygja á brjóstvöðva