Upplýsingar um æfingu dagsins
"Þú stjórnar ekki hverju þú lendir í í dag en þú stjórnar því hvað þú ætlar að gera við það"
Æfing dagsins er AMRAP æfing þar sem þú ferð eins marga hringi og þú getur á 8 mín. Það eru tvær mismunandi æfingarútinur. Hver hringur samanstendur af fjórum æfingum, þar af er ein æfing sem kallast base æfing en hana tekur þú á milli æfinga. Þannig þú gerir æfingu 1, síðan base æfing, æfing 2 síðan base æfing, æfing 3 og loks aftur base æfing og þá ertu búin með einn hring af æfingarútínunni. Reyndu að fara eins marga hringi og þú kemst á 8 mín og hvíla sem minnst á þessum tíma.
Tæki og tól fyrir æfingu dagsins: Tvö handlóð eða sambærilegt og mini bands teygju ef þú vilt gera æfinguna aðeins meira krefjandi.
Æfing dagsins
Upphitun
Flæði:
- 1. Köttur kú - öxl að mjöðm
- 2. Barnið
- 3. Hundurinn
- 4. Hryggvinda
- 5. Bird dog - grindarbotn
- 6. Mjaðmaopnun á dýnu
- 7. Rúlla öxlum + opna
Upphitunaræfing:
- 1. Líkamsstöðuæfing - standandi
- 2. Hnébeygja
- 3. Good morning
- 4. Pull aparts
- 5. Líkamsstöðuæfing - liggjandi
- 6. Mjaðmalyfta
Æfingarútína 1: 8 mín AMRAP
Base: 5x kviðbombur / around the world
- 1. 6/6x róður / armrétta
- 2. 6/6x öfugur planki (draga hné að)
- 3. 20x tylla tám
Æfingarútína 2: 8 mín AMRAP
Base: 10x dúa/hopp
- 1. 10x hnébeygja (með teygju)
- 2. 10x armkreppa + hliðarlyfta
- 3. 10x romanian + upptog
- 1. 50 súmó dú
- 2. 50x mjaðmalyfta + sundur saman
Teygjur
- Köttur kú, barnið, dúfan, lærisvöðva (innanverða, framanverða, aftanverða), axlir og annað líkaminn kallar á