Þetta æfingaplan er skipt upp í þrjár vikur. Kláraðu allar æfingar í viku 1 og farðu síðan í viku 2. Gert er ráð fyrir þremur æfingum í viku. Þú getur alltaf bætt við æfingum úr æfingabanka. Ef þú nærð ekki að klára æfingar vikunnar færir þú þær yfir í næstu viku. Þegar þú hefur klárað planið gætir þú farið aftur í gegnum það og bætt þig í þyngdum eða þá hoppað yfir í MM-Fit On-Demand 1, styrktar- og þolplan 1 eða hlaupaplan 1.
Þessar æfingar eru allar hugsaðar sem heimaæfingar en ef þú átt þrektæki getur þú alltaf bætt því við eða skipt út æfingu fyrir þrektækið.
Til þess að ná sem mestum árangri er gott að eiga eitt til tvö sett af handlóðum (léttari og þyngri), minibands teygju og langa æfingateygju.