
Jóga FLÆÐI með Dröfn er 4 vikna jóga námskeið kennt tvisvar sinnum í viku á þriðjudögum og föstudögum kl. 16:30-17:40 í Kvennastyrk á Strandgötu 33, 220 Hafnarfirði.
Tíminn er 70 mín.
Um tímann
Jóga FLÆÐI er tími sem hefur allt það besta sem jóga hefur upp á að bjóða. Áherslan er á styrkjandi jógastöður, teyjur, öndun og flæði. Hressandi eftirmiðdagsjóga með heilandi og krefjandi jógaæfingum. Endurnærandi slökun í lokin.
Hver tími er 70 mín, kenndur á þriðjudögum og föstudögum frá kl. 16:30-17:40. Gott er að taka með sér vatnsbrúsa.
Fyrir hvern er þetta námskeið
Þetta námskeið er hugsað fyrir allar konur, byrjendur og vanar en ófrískum konum er bent á meðgönguþjálfun Kvennastyrks.
Kennari námskeiðs
Dröfn Hreiðarsdóttir jógakennari leiðir tímana en hún hefur lokið 200H RYT Yoga Alliance, 60H og 50H RYT Yin Yoga.
Verð
Stakt 4 vikna námskeið er á kr. 19.990,- Með því að leggja inn greiðslu ertu að samþykkja eftirfarandi skilmála og persónuverndarstefnu. Hægt er að lesa nánar um endurgreiðslu og annað í skilmálum
Skráning
Þú skráir þig með því að setja vöru í körfu og klárar greiðsluferlið. Með því að skrá þig ertu að samþykkja eftirfarandi skilmála og persónuverndarstefnu. Ef þú vilt vera skráð í áskrift getur þú óskað eftir því með tölvupósti (info@fitbysigrun.com) eftir að tímabilið er hafið og ferð þá í áskriftarkerfið hjá Kvennastyrk sem er í gegnum Reglu bókhaldskerfi. Hægt er að lesa nánar um áskriftina í skilmálum
Kvittun
Þú færð staðfestingarpóst frá FitbySigrún sem staðfestir kaupin og kvittun frá Korta sem staðfestir greiðslu. Ef þú vilt fá kvittun fyrir stéttarfélagið verður þú að senda póst á info@fitbysigrun.com og óska eftir því. Kenntiala verður að fylgja með í tölvupóstinum.
MEÐ ÞVÍ AÐ SKRÁ ÞIG Á ÞETTA NÁMSKEIÐ SAMÞYKKIR ÞÚ EFTIRFARANDI SKILMÁLA OG PERSÓNUVERNDARSTEFNU.